Ýttu á Ctrl/Cmd + P til að prenta
eða vista sem PDF skjal

fjórðungsílát

Ólafur Stefánsson segir fjórðungsílát (vín eða rennandi vara) vera 20 merkur og miðar við mæli.1Ólafur Stefánsson, Stutt undirvísun, bls. 64.

Samkvæmt Búalögum, sem gefin voru út í Hrappsey árið 1775, virðist fjórðungur mældur hafa verið 10 merkur mældar = 5 pottar, sem reiknaðir hafa verið 4,833 lítrar.2Árbók landbúnaðarins 1966. Bókarauki: Búalög. Verðlag á íslandi á 12.–19. öld, bls. 56, 66; Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 923. Á þeim grundvelli er áætlað fjórðungsrúm í katli og fjórðungsrúm í strokki.3Árbók landbúnaðarins 1966. Bókarauki: Búalög. Verðlag á Íslandi á 12.–19. öld, bls. 66. — Orðin mældur og veginn vísa til rúmmáls (mældur) og vogar (veginn). Orðið ketill var fyrrum haft um potta. — Hvernig talan 4,833 lítrar er fengin, er ekki ljóst, því að eftir lögum um metramæli og vog frá 1907, sem tóku gildi í ársbyrjun 1910, ættu 5 pottar að vera 4,831 lítrar.4Stjórnartíðindi 1907 A, bls. 202. Sjá nánar í Mál og vog.

Tilvísanir

Tilvísanir
1 Ólafur Stefánsson, Stutt undirvísun, bls. 64.
2 Árbók landbúnaðarins 1966. Bókarauki: Búalög. Verðlag á íslandi á 12.–19. öld, bls. 56, 66; Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 923.
3 Árbók landbúnaðarins 1966. Bókarauki: Búalög. Verðlag á Íslandi á 12.–19. öld, bls. 66.
4 Stjórnartíðindi 1907 A, bls. 202.