Ýttu á Ctrl/Cmd + P til að prenta
eða vista sem PDF skjal

hestur

„magneining af heyi, mismunandi eftir héruðum. Töðuhesturinn var víðast 80 kg á Suðurlandi, en allt að 120 kg fyrir norðan og austan.“ Eftir athugun Hagstofu Íslands laust fyrir 1930: „en þá mældist töðuhestur á landinu öllu að meðaltali 86 kg, úthey almennt 80 kg, þar af úthey af áveitu- og flæðiengjum 93 kg og annað úthey 76 kg. Í hagskýrslum er ennfremur 1 hestur af sverði og mó jafngildi 80 kg og 1 hestur af hrísi 86 kg.“1Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 922.

Sjá nánar í Mál og vog.

Tilvísanir

Tilvísanir
1 Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 922.