Ýttu á Ctrl/Cmd + P til að prenta
eða vista sem PDF skjal

Landaura- og álnareikningur

Landaura- og álnareikningur Ólafs Stefánssonar árið 1785 (stytt):1Ólafur Stefánsson, Stutt undirvísun, bls. 63.

1 hundrað hundraða er 675 ríkisdalir kúrant, þegar hvert hundrað er reiknað á 5 ríkisdali kúrant og 60 skildinga en reiknast ella almennt á 480 ríkisdali í krónum. [Hér er væntanlega miðað við gengi kúrants í landaurakerfinu um 1785, en gengi myntar gagnvart landaurum breyttist í tímans rás.]

1 hundrað er 20 aurar eður 120 álnir.

1 eyrir er 6 álnir.

1 alin er 2 fiskar, þegar 30 álnir eður 5 aurar reiknast fyrir 60 fiska.

Annars reiknast 30 álnir á 48 fiska eður 1 ríkisdal í spesíu og eins 30 álnir á 451/3 fiska eður 1 ríkisdal í krónum.

1 mörk er 8 aurar, 48 álnir eður 96 fiskar.

Sjá nánar í Mál og vog.

Tilvísanir

Tilvísanir
1 Ólafur Stefánsson, Stutt undirvísun, bls. 63.