WARNING: unbalanced footnote start tag short code found.
If this warning is irrelevant, please disable the syntax validation feature in the dashboard under General settings > Footnote start and end short codes > Check for balanced shortcodes.
Unbalanced start tag short code found before:
“Poul Thestrup, Pund og alen, bls. 24.) Þyngd einstakra vörutegunda var:”
Breytileg þyngd eftir vörutegundum, algengt var að lest svaraði u.þ.b. til stórlestar [rúmmál] þegar komið var fram á 18. öld, eða 5.200 pund. Poul Thestrup segir 12 skippunda lest svara til 1.905 kg fyrir þungavöru eins og blý, járn og skreið, en 6 skippunda lest svara til 952 kg fyrir léttavöru eins og hamp og humla.((Poul Thestrup, Pund og alen, bls. 24.)
Þyngd einstakra vörutegunda var:((Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 922.))
þurrkaður saltfiskur = 18 skippund,
harður fiskur eða skreið = 15 skippund (12 skippund í sumum heimildum),
tóbak = 12,5 skippund,
þungavara, s.s. blý og járn = 12 skippund,
sykur = 10 skippund,
léttavara, s.s. hör, hampur og humlar = 6 skippund.
Viðarlest var 4.000 pund að sögn Halldórs Guðmundssonar.((Halldór Guðmundsson, Nákvæm lýsing á peningum, vigt, máli og fl., bls. 25.)
Sjá nánar í Mál og vog.