Ýttu á Ctrl/Cmd + P til að prenta
eða vista sem PDF skjal

mörk / rúmmál

Magnús Már Lárusson segir, að eftir 1619 hafi mæld mörk verið 0,248 lítrar.1Magnús Már Lárusson, „Íslenzkar mælieiningar“, bls. 244.

Ekki er ljóst, hvenær Íslendingar fóru almennt að að tala um hálfpott sem mörk eða 0,496 lítra. Páll Vídalín lögmaður segir m.a. um mörk: „það sem vér nú köllum hálfan pott, er það heilt skálapund að þúnga.“2Páll Vídalín, Skýringar yfir fornyrði lögbókar þeirrar, er Jónsbók kallast. Reykjavík 1854, bls. 343. Halldór Guðmundsson segir árið 1850, að á Íslandi sé 1 mörk sama og ½ pottur.3Halldór Guðmundsson, Nákvæm lýsing á peningum, vigt, máli og fl., bls. 25.

Minnst má gátunnar: „Faðir minn heitir fremst á nál, fæddur í tveimur pelum.“ Svarið er: Oddur og Mörk. Sjá nánar í Mál og vog.

Tilvísanir

Tilvísanir
1 Magnús Már Lárusson, „Íslenzkar mælieiningar“, bls. 244.
2 Páll Vídalín, Skýringar yfir fornyrði lögbókar þeirrar, er Jónsbók kallast. Reykjavík 1854, bls. 343.
3 Halldór Guðmundsson, Nákvæm lýsing á peningum, vigt, máli og fl., bls. 25.