Ýttu á Ctrl/Cmd + P til að prenta
eða vista sem PDF skjal

oktavó (danska: oktav)

bókarstærð. Oktavóbrot táknar, að pappírsörkin er brotin saman þrisvar sinnum og verða því átta blöð úr örkinni. Bók í oktavtóbroti verður hálf að stærð miðað við bók í kvartóbroti úr sömu pappírsarkarstærð. Föst oktavóstærð verður ekki gefin upp vegna misjafnra pappírsarkastærða.1Poul Thestrup, Pund og alen, bls. 27.

Sjá nánar í Mál og vog.

Tilvísanir

Tilvísanir
1 Poul Thestrup, Pund og alen, bls. 27.