brennifaðmur = brennihlaði úr álnarlöngum kubbum, faðmur á hæð og faðmur á breidd. Venjulegt brenni var álnarlangt. Faðmur af slíku brenni var 72 rúmfet eða 2,226 rúmmetrar.1Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 923; Poul Thestrup, Pund og alen, bls. 17–18.
málfaðmur heys = 3 álnir danskar á hvern veg eða 6,68 rúmmetrar. Notað um hey í stakki eða í hlöðu. Íslenskur málfaðmur var að fornu 3,5 álnir eða 5,04 rúmmetrar væri alinin 49 sm, en 7,13 rúmmetrar væri alinin 55 sm.2Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 924. „1 faðmur heys er 20 kaplar. [Kaplar = hestar = hestburðir.] 1 faðmur heys af reiðum er á 20 kapla.“3Jón Guðmundsson, Reikningslist einkum handa leikmönnum., bls. 80. Sjá nánar í Mál og vog.