lest (danska: last, læst)

Síðast breytt: 2025.05.20
Slóð:
Áætlaður lestími: 1 mín

Mælieining fyrir rúmmál, burðargetu skipa eða vog. Lest var aðalmælieiningin fyrir næstum allt, sem flutt var með skipum. Fyrrum var stærð skipa gefin upp í skipslestum fyrir mismunandi vörur (rúg, hveiti eða salt), þar sem tunnufjöldi í lest var mismunandi eftir vöru. Frá árinu 1672 miðaðist danska skipslestin yfirleitt við 24 tunnur af rúgi, sem voru reiknaðar yfir í 5.200 pund. Var þá talað um kommercelæst (íslenska: stórlest / varningslest). Sjá kommercelæst. Lestarrúmeining miðaðist þó við tunnur, oftast 12, 18 eða 24 tunnur. Rúmmálið setti takmörkin fyrir léttari vörur, vogin fyrir þyngri vörur. Skipslestin var því breytileg, oftast á bilinu 1,3–3,1 rúmmetrar eftir vörutegundum.1Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 923–924; Poul Thestrup, Pund og alen, bls. 24. Jón Guðmundsson talaði um farrúm eða lest kornvöru.2Jón Guðmundsson, Reikningslist einkum handa leikmönnum, bls 76.

Kornlest. Upphaflega 24 tunnur af korni. Árið 1632 var tekin upp 22 tunna lest fyrir rúg, bókhveiti og hirsigrjón, árið 1647 fyrir hveiti og síðar aðrar korntegundir. Grjónalest var þó áfram 24 tunnur. Mjöllest var þó aðeins 12 tunnur.3Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 923–924; Poul Thestrup, Pund og alen, bls. 24. Jón Guðmundsson sagði árið 1841 lest kornvöru vera 12 tunnur.4Jón Guðmundsson, Reikningslist einkum handa leikmönnum, bls 76.

Hveitimjöls-, bauna-, smjör-, kjöts-, fisk-, tólgar-, síldar-, sápu-, kalk-, olíu-, tjöru-, öl-, ediks– og brennivínslest var jafnan 12 tunnur, stundum bætt við 13. tunnunni til þess að mæta rýrnun.5Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 923–924.

Saltlest var 12 tunnur, ef um var að ræða Lüneborgar, danskt eða norskt salt, en 18 tunnur, ef saltið var franskt, spænskt eða skoskt. 176 pottar í tunnunni.6Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 924.

Steinkola- / barkar-(bik-)lest var 18 tunnur, 176 pottar í tunnunni.7Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 924. Sjá nánar í Mál og vog.

Tilvísanir

Tilvísanir
1 Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 923–924; Poul Thestrup, Pund og alen, bls. 24.
2 Jón Guðmundsson, Reikningslist einkum handa leikmönnum, bls 76.
3 Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 923–924; Poul Thestrup, Pund og alen, bls. 24.
4 Jón Guðmundsson, Reikningslist einkum handa leikmönnum, bls 76.
5 Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 923–924.
6 Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 924.
7 Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 924.
Var efnið gagnlegt?
Nei | 0 0 af 0 mátu greinina gagnlega.
Skoðað: 2