Dönsk mynt og peningatal1Ólafur Stefánsson, Stutt undirvísun, bls. 61–62.
1 spesíu dúkatur gildir stundum meir en aldrei minna en 2 rd., 2 mörk, 8 sk. kúrant.
1 kúrant dúkatur gildir á við 2 rd. kúrant.
1 tvöföld króna <gildir> við 8 mörk krónu eða 136 sk.
1 ný spesía <gildir> við 1 rd. kúrant, 22 skildinga eður 118 skildinga.
1 gömul spesía gildir 1 rd. kúrant og 12 skildinga eður 108 skildinga.
1 nýtt spesíu mark <gildir> 192/3 skildinga.
1 gamalt spesíu mark <gildir> 18 skildinga.
1 rd. krónur er 1 rd. kúrant og 6 skildingar eður 102 skildingar.
1 mark krónur eru 17 skildingar.
1 rd. kúrant <er> 6 mörk eður 96 skildingar.
1 mark kúrant er 16 skildingar.
1 ríkisort kúrant er 24 skildingar.
1 skildingur er 1/16 partur úr kúrant marki, 3 hvítingar eður 12 peningar.
1 peningur er 12 partur úr skildingi.
1 hvítingur er þriðji partur úr skildingi.
1 fyrk eður sösling er ½ skildingur.
1 tunna gulls er 100.000 rd.
10 tunnur gulls er 1 milljón eður 1.000.000 rd.
Þegar menn láta 4ra vera í kasti af kúrantmynt, sem skjótast er og brúkanlegast þá peningar eru taldir, þar til 10 ríkisdala: [Kast (danska): „Þeir peningar (optast nær 4) sem maður varpar úr hendi sjer í hvert sinn þegar maður er að telja peninga: Tolv k<ast> i toskillinger (þ.e. 48 tvískildingar).“2Konráð Gíslason, Dönsk orðabók með íslenzkum þýðingum. Kaupmannahöfn 1851, bls. 235.]
120 köst af 2 skildingum.
60 köst af 4 skildingum.
30 köst af 8 skildingum.
24 köst af 10 skildingum.
16 köst af 15 skildingum.
10 köst af 24 skildingum eður ríkisortum.
Sjá nánar í Mál og vog.