anker (vínanker, tunnufjórðungur eða lagarkvartil)

Síðast breytt: 2025.05.20
Slóð:
Áætlaður lestími: < 1 mín

40 pottar eða 38,64 lítrar. Misjafnt þó eftir löndum. Frá árinu 1698 áttu í Danmörku að vera 39 pottar í ankeri (á Íslandi frá 1784). Jafnan var þó miðað við 40 potta.1Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 923; Poul Thestrup, Pund og alen, bls. 15. Ólafur Stefánsson segir 40 potta vera í ankeri, fjögur anker gera eina ámu, sex anker voru uxahöfuð.2Ólafur Stefánsson, Stutt undirvísun, bls. 64. Í lögum um metramæli og vog nr. 33/1907, 16. nóvember, sem tóku gildi árið 1910, er anker sagt vera 39 pottar eða 37,68 lítrar.3Stjórnartíðindi 1907 A, bls. 202; Stjórnartíðindi 1909 A, bls. 320–321. Sjá nánar í Mál og vog.

Tilvísanir

Tilvísanir
1 Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 923; Poul Thestrup, Pund og alen, bls. 15.
2 Ólafur Stefánsson, Stutt undirvísun, bls. 64.
3 Stjórnartíðindi 1907 A, bls. 202; Stjórnartíðindi 1909 A, bls. 320–321.
Var efnið gagnlegt?
Nei | 0 0 af 0 mátu greinina gagnlega.
Skoðað: 2