áttungur (danska: otting, sjá einnig ottingkar (danska))

Síðast breytt: 2025.05.20
Slóð:
Áætlaður lestími: < 1 mín

áttundi hluti. Áttungur (otting), miðaður við 144 potta korntunnu, telst því 17,39 lítrar. Áttungur (ottingkar), miðaður við skeppu, er þá 2,17 lítrar.1Poul Thestrup, Pund og alen, bls. 27. Ólafur Stefánsson segir áttung (vín eða rennandi vöru) vera 15 potta eða áttunda hluta lagartunnu.2Ólafur Stefánsson, Stutt undirvísun, bls. 64. Slíkur áttungur væri þá 14,49 lítrar. Halldór Guðmundsson segir áttung vera 2¼ pott og miðar þá við þurrvörur (korn, salt o.fl.).3Halldór Guðmundsson, Nákvæm lýsing á peningum, vigt, máli og fl., bls. 25. Ætti sá áttungur því að vera 2,2152 lítrar. Sjá nánar í Mál og vog.

Tilvísanir

Tilvísanir
1 Poul Thestrup, Pund og alen, bls. 27.
2 Ólafur Stefánsson, Stutt undirvísun, bls. 64.
3 Halldór Guðmundsson, Nákvæm lýsing á peningum, vigt, máli og fl., bls. 25.
Var efnið gagnlegt?
Nei | 0 0 af 0 mátu greinina gagnlega.
Skoðað: 3