búskjóla

Síðast breytt: 2025.05.20
Slóð:
Áætlaður lestími: < 1 mín

Hefðbundið vogarmál fyrir korn. Samkvæmt Búalögum átti sléttfull búskjóla að rúma 1½ fjórðung eða 30 merkur á vog.1Búaðlög eður verðlag fornt og nýtt. Hrappsey 1775, bls. 103.  Íslensk orðabók segir búskjólu vera 30 merkur vegnar (6,43 lítra) eða 36 merkur mældar (9,29 lítra).2Íslensk orðabók. Reykjavík 2002, bls. 192. „30 merkur vegnar (4,65 lítrar) = 36 merkur mældar (7,74 lítrar)“.3Magnús Már Lárusson, „Íslenzkar mælieiningar“, bls. 244. Þessar tölur Magnúsar koma ekki heim og saman við mál hans á katlamálsskjólu og virðast allt of lágar. Sjá nánar í Mál og vog.

Tilvísanir

Tilvísanir
1 Búaðlög eður verðlag fornt og nýtt. Hrappsey 1775, bls. 103.
2 Íslensk orðabók. Reykjavík 2002, bls. 192.
3 Magnús Már Lárusson, „Íslenzkar mælieiningar“, bls. 244.
Var efnið gagnlegt?
Nei | 0 0 af 0 mátu greinina gagnlega.
Skoðað: 3