f Ætla verður fjórðung fjórða hluta einhverrar stærðar. Þegar um mælieiningu er að ræða, verður að líta til þess, við hvað hefur verið miðað og á hvaða tíma.
Í Kulturhistorisk leksikon for nordisk middelalder gefur Magnús Már Lárusson upp eftirfarandi miðaldaeiningar fyrir rúmmálsfjórðung, annars vegar kornmál, hins vegar lagarmál:
fjórðungur (kornmál) = 20 merkur vegnar = 24 merkur mældar = 1/24 sáld = 1/12 sældingur = ¼ mælir.1Magnús Már Lárusson, „Fjerding“. Kulturhistorisk leksikon IV, dálkar 385–386. Magnús Már Lárusson segir kornfjórðung vera 5,14 lítrar (4,29 kg).2Magnús Már Lárusson, „Íslenzkar mælieiningar“, bls. 245.
fjórðungur (rúmmál) = 22/3 karlaskar = 4 kvenaskar = 2/3 búskjóla = 20 merkur vegnar af rúgi = 20 merkurbollar = 10/12 pundkerald = 1/24 tunna = 1/12 stampur = 1/12 hálftunna = 1/6 kvartil = 1/3 áttungur = 10/12 skjóla.3Magnús Már Lárusson, „Fjerding“. Kulturhistorisk leksikon IV, dálkar 385–386. Væri þá lagarfjórðungur 5,18 lítrar, ef farið er eftir tölum Magnúsar Más Lárussonar.4Magnús Már Lárusson, „Íslenzkar mælieiningar“, bls. 244. Sjá nánar í Mál og vog.
Tilvísanir