lóð silfurs

Síðast breytt: 2025.05.20
Slóð:
Áætlaður lestími: < 1 mín

Sektargjöld miðuðust gjarnan við lóð silfurs. Eitt lóð silfurs var 14,7 grömm samkvæmt danskri silfurvog 1683–1873.1https://denstoredanske.lex.dk/metrologi. Ekki hefur verið kannað nánar, hvað peningaverðgildið hefur verið. Í kansellíbréfi til stiftmtmanns 8. júlí 1806 segir, að ágreiningur hafi verið um það á Íslandi, hvernig eigi að reikna slíkar bætur. Segir því, að eitt lóð silfurs skuli á Íslandi reikna sem 48 skildinga kúrant eins og venja sé í Danmörku.2Lovsamling for Island VII, bls. 82.

Sjá nánar í Mál og vog.

Tilvísanir

Tilvísanir
1 https://denstoredanske.lex.dk/metrologi.
2 Lovsamling for Island VII, bls. 82.
Var efnið gagnlegt?
Nei | 0 0 af 0 mátu greinina gagnlega.
Skoðað: 5