Árið 1683 var rúmeiningin ákveðin 1/32 teningsfet, sem svarar til 0,966 lítra. Fjórir pelar voru í potti.1Poul Thestrup, Pund og alen, bls. 28. Hálfur pottur var ein mörk eða 2 pelar.2Ólafur Stefánsson, Stutt undirvísun, bls. 64. — Sjá mörk hér á undan. Árið 1841 sagði Jón Guðmundsson 1 pott taka 2 merkur mældar og miðaði þá við korn eða salt.3Jón Guðmundsson, Reikningslist einkum handa leikmönnum, bls 76.— Með lögum nr. 33/1907, 16. nóvember, um metramæli og vog, sem tóku gildi 1. janúar 1910, var pottur ákveðinn 0,9661 lítri.4Stjórnartíðindi 1907 A, bls. 198–203; Stjórnartíðindi 1909 A, bls. 320–321. Yfirleitt er núna miðað við, að pottur sé 1 lítri, sbr. mjólkurpottur. Sjá nánar í Mál og vog.