Silfurvigt

Síðast breytt: 2025.05.20
Slóð:
Áætlaður lestími: < 1 mín

Í ritinu Reikningslist einkum handa leikmönnum fjallar Jón Guðmundsson um:

„Silfurvigt.

1 mörk er 8 aurar eður 8 lóð.

1 eyrir er 2 lóð.

1 lóð er 4 kvintin eður ½ eyrir.

1 örtigur er 2/3 úr lóði.

1 kvintin er 4 ort.

Merk: 1. Sá er mismunur á almennri kramaravigt [verslunarvigt] og silfurvigt, að 16 merkur á kramaravog eru 17 merkur á silfurvog.

Merk: 2. Í öngvum peningum né smíðuðu silfri er hreint eður eintómt silfur heldur (nokkurt) eir [kopar] meðfram; þegar silfur er nefnt eður auðkennt, (stimplað 10 lóða) (lødigt) 12 lóða, 14 lóða, þá er sú meiningin, að í hvörri mörk þess séu 10, 12, 14 lóð púra [hreins] silfurs en 6, 4, 2 lóð kopars; í dönskum spesíum heilum og hálfum er 131/3 lóða silfur, í smærri peningum, gömlum krónum og þýskum gömlum spesium er það miklu lakara.“1Jón Guðmundsson, Reikningslist einkum handa leikmönnum, bls. 74.

Sjá nánar í Mál og vog.

Tilvísanir

Tilvísanir
1 Jón Guðmundsson, Reikningslist einkum handa leikmönnum, bls. 74.
Var efnið gagnlegt?
Nei | 0 0 af 0 mátu greinina gagnlega.
Skoðað: 4