Ólafur Stefánsson segir fjórðungsílát (vín eða rennandi vara) vera 20 merkur og miðar við mæli.1Ólafur Stefánsson, Stutt undirvísun, bls. 64.
Samkvæmt Búalögum, sem gefin voru út í Hrappsey árið 1775, virðist fjórðungur mældur hafa verið 10 merkur mældar = 5 pottar, sem reiknaðir hafa verið 4,833 lítrar.2Árbók landbúnaðarins 1966. Bókarauki: Búalög. Verðlag á íslandi á 12.–19. öld, bls. 56, 66; Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 923. Á þeim grundvelli er áætlað fjórðungsrúm í katli og fjórðungsrúm í strokki.3Árbók landbúnaðarins 1966. Bókarauki: Búalög. Verðlag á Íslandi á 12.–19. öld, bls. 66. — Orðin mældur og veginn vísa til rúmmáls (mældur) og vogar (veginn). Orðið ketill var fyrrum haft um potta. — Hvernig talan 4,833 lítrar er fengin, er ekki ljóst, því að eftir lögum um metramæli og vog frá 1907, sem tóku gildi í ársbyrjun 1910, ættu 5 pottar að vera 4,831 lítrar.4Stjórnartíðindi 1907 A, bls. 202. Sjá nánar í Mál og vog.
Tilvísanir
↑1 | Ólafur Stefánsson, Stutt undirvísun, bls. 64. |
---|---|
↑2 | Árbók landbúnaðarins 1966. Bókarauki: Búalög. Verðlag á íslandi á 12.–19. öld, bls. 56, 66; Hagskinna. Sögulegar hagtölur um Ísland, bls. 923. |
↑3 | Árbók landbúnaðarins 1966. Bókarauki: Búalög. Verðlag á Íslandi á 12.–19. öld, bls. 66. |
↑4 | Stjórnartíðindi 1907 A, bls. 202. |